Jæja þá eru færeskir dagar búnir...Helgin heppnaðist vel þrátt
fyrir viðbjóðslegt veður og ömurlegt tjald hahaha
..En já það var
djammað mjög mikið og allir frekar fullir
...
Við fórum 5 saman, Egill, Arnar, Katrín, Snædís og ég, úps og
ekki má gleyma dekurrófunni minni sem að hélt á mér hita þegar ég
varð að sofa í bílnum hann Tímon minn eða Ramón eins og Egill
kallar hann
...Við fengum jeppann hans pabba lánaðan og héldum af
stað um kvöldmataleytið út úr bænum eftir að hafa verslað í Bónus
grillkjöt og fleira sem fór svo allt í ruslið
...Þegar við vorum
rétt ókominn í Ólafsvík ákvað löggan að stoppa okkur
, bara svona
til að tékka hvort að það væri nokkuð áfengi í bílnum
hehe, ég
gat náttúrulega ekki neitað þegar að við vorum fimm unglingar í
bílnum haha..En við sluppum
..
Þegar við komum á staðinn var byrjað á því að tjalda einu
stærsta kúlutjaldi ever og vá það var sko ekki gaman, sérstaklega
ekki þegar maður sá það svo bara fjúka og svona
..En Arnar lét það
sko ekki stoppa sig, honum leið bara ýkt vel,stein svaf með tjaldið
nánast ofaná sér og rennblautur hehe
..
Laugardagsnóttin var samt betri því að ég talaði við afa og hann
leyfði okkur að gista í sumastofunni í skólanum og það var bara ýkt
gaman fyrir utan það að við vorum ekki með dýnur
..
En já restin af helginni fór í að sitja inní bíl og hlusta
á Nínu, dansa á bryggjuballi og fara upp á svið, byrja að drekka kl
: 17 hálfa eplasnafs flösku, labba um með eplabjór í lobapeysu,
Egill að drulla yfir fólk hehe, Kata að hözzla, Arnar að leita að
slagsmálum hihi,Snædis að labba yfir á.. og sitja inní
saumastofu og hlusta á bróðir Kötu spila á gítar og við öll gólandi
með
..
Takk fyrir ferðina
*